Auglýsing

Vorið

15. apríl 2009 klukkan 18:04
Veturinn sem ég bjó í Tékklandi var ég í íbúð með ungri konu sem aldrei hafði kynnst vori - enda hafði hún aldrei lifað vetur, fyrr en þá.

Hún Jennifer ólst upp í Suður-Afríku og hafði búið eitt ár í Ísrael. Svo kom hún til Tékklands - til Evrópu - til þessa ægilega heimshluta þar sem jörðin og mannlífið stokkfrusu yfir veturinn. Hún hafði aldrei kynnst annarri eins raun. Þó hafði hún vanist átökum, blóðugum bardögum, ofsóknum og manndrápum. Allt var skárra en frostið.

Vorið var henni uppgötvun, frelsi og nýtt líf.


Mér verður pínulítið hugsað til hennar núna þegar birtan og farfuglarnir eru mætt á svæðið, þótt snjórinn hafi ekki enn hleypt jarðargróðrinum að.


Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Inga
  • Netfang: ingadan@gmail.com
  • Staður: Ísafirði
  • Heimilisfang: Engjavegi 11
  • Símanúmer: 8482093