Auglýsing

Ég elska svona morgna

23. mars 2009 klukkan 10:24
Að vera alein heima, ekkert sem rekur á eftir mér - þannig lagað. Að fara í sturtuna og fá sér morgunteið án þess að vera á hlaupum. Vorbirtan treður sér inn um öll augu hússins og yfirtekur sálina. Ísafjarðarlognið - kyrrðin - hefur verið ríkjandi dögum saman og hvort sem ég lít út um eldhúsglugga eða þá gluggana í svefnherberginu eða í stofunni, blasa við mér fjöll. Veggir utan um tilveru mína. ótrúlega skýlandi. Að búa í bæ - í mannabyggð - og þó svona úti í sjálfri náttúrunni, það eru forréttindi. Í fjallaþorpi við sjóinn, fágætt og einstaklega rómantískt.
 
Kristín Svanhildur Ólafsdóttir
Það liggur við að maður fai heimþrá!
#1
01. apríl 2009 klukkan 19:34

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Inga
  • Netfang: ingadan@gmail.com
  • Stađur: Ísafirđi
  • Heimilisfang: Engjavegi 11
  • Símanúmer: 8482093